KM Logo



Tenglar

Fiskistofa: Fiskistofa heyrir undir sjávarútvegsráðherra og framfylgir stefnu íslenskra stjórnvalda varðandi veiðar. Stofnunin annast framkvæmd laga um stjórn fiskveiða, hefur eftirlit með fiskveiðum og sér um söfnun, úrvinnslu og dreifingu upplýsinga varðandi fiskveiðar og ráðstöfun afla. Nokkur mikilvæg verkefni Fiskistofu eru eftirfarandi: Útgáfa veiðileyfa og úthlutun aflaheimilda; millifærslur aflaheimilda; söfnun og miðlun upplýsinga um veiðar og vinnslu sjávarafla; eftirlit með veiðum; eftirlit með vígturn og skráningu afla; og, álagning gjalds vegna ólögmæts sjávarafla.

Verðlagsstofa skiptaverðs: Hlutverk Verðlagsstofu skiptaverðs er að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut þeirra. Birting upplýsinga um fiskverð er mikilvægur þáttur í starfsemi stofunnar. Verðlagsstofa vill hafa sem minnst áhrif á verðlag og frjálsa samninga, en þegar talið er að brugðið sé út af almennum leikreglum notar stofan rétt sinn til íhlutunar.

Siglingastofnun: Þrátt fyrir ungan aldur geymir stofnunin yfir 100 ára gamla sögu og endurspeglar víðtækar þjóðfélags- og tæknibreytingar á Íslandi á 20. öldinni. Verkefni stofnunarinnar í dag eiga sér mjög langa sögu og hefur umhverfi vita-, hafna- og skipamála og starfsemi Vita- og hafnamálastofnunar og Siglingamálastofnunar tekið miklum breytingum. Kjarninn í starfi beggja stofnana og Siglingastofnunar Íslands í dag hefur þó alltaf miðað að því að tryggja öruggar og hagkvæmar siglingar.

skip.is - vefur sjómanna: Sjávarútvegsvefurinn Skip.is var stofnaður af Skerplu ehf. Í júlí 2003 keypti Framtíðarsýn hf. vefinn og Sjómannaalmanak Skerplu. Framtíðarsýn hf. gefur einnig út Fiskifréttir og Viðskiptablaðið og rekur viðskiptavefinn VB.is. skip.is hefur eftirfarandi þjónustusvið - Fréttavefur, Skipaskrá, Hafnaskrá, og Gular Síður.

5 33 44 55
Senda vefpóst vegna tilboða hjá okkur
Augýsa hjá okkur


© Kvótamarkaðurinn 2008 | Notkunarskilmálar | Lagalegur fyrirvari
reynir@kvotamarkadur.is