
|  |
Starfsfólk Reynir Þorsteinsson - Framkvæmdastjóri
Reynir stofnaði Kvótamarkaðinn og er löggiltur fasteigna- fyrirtækja- og skipasali. Hann hefur um langt skeið unnið við sjávarútveg. Eins og svo margir aðrir hefur hann starfað bæði til sjós og lands í þeim geira, gildir þá einu hvort um er að ræða hefðbundin verkamannastörf /sjómansstörf eða stjórnunarstörf. Hann hefur verið til sjós bæði á neta- og línubátum sem og á rækjutrolli, unnið í frystihúsum, saltfiskverkunum og hjá Síldarverksmiðjum Ríkisins á meðan þær voru og hétu.
Reynir var stjórnarmaður Jökuls hf., Fiskiðju Raufarhafnar hf. og Geflu hf. þar til þessi 3 fyrirtæki sameinuðust 1999 undir nafni Jökuls hf. þá tók hann við stjórnarformensku í hinu sameinaða félagi. Reynir hefur unnið við skipa- og kvóta- og fyrirtækjamiðlun til fjölda ára við góðan orðstír fyrir vönduð vinnubrögð og heilindi í starfi. Kvótamarkaðurinn ehf. er með starfsstöð sína í Grindavík, og ferð það vel enda bærinn ein stærsta verstöð landsins. Sjálfur býr Reynir í Garði á Reykjanesi.
|
 |

|